Set ehf. hefur stofnað nýtt sölufyrirtæki í Þýskalandi sem ætlað er að koma framleiðsluvörum fyrirtækisins á markað á meginlandi Evrópu. Nýja fyrirtækið Set Pipes GmbH er staðsett í sambandsríkinu Nord Reihn Westphalen í bænum Haltern am See sem er nyrst í Ruhr héraðinu.
Staðsetning fyrirtækisins er miðuð við hagkvæmni í flutningi á vörum. Aðaláhersla verður lögð á sölu foreinangraðra Elipex plaströra og hitaveituröra úr stáli.