Orkuvinnsla íslenskra hitaveitna, þar sem náttúruleg jarðhitaorka er nýtt til húshitunar og raforkuframleiðslu, er einstök á heimsvísu. Mikil þekking hefur skapast á sviði rannsókna, öflunar og virkjunar hitaorku eftir að Íslendingar hófu að beisla þessa auðlind, og nýting jarðvarma er í dag stór þáttur í velmegun og velsæld þjóðarinnar.Þjónusta við hitaveitumarkaðinn er þungamiðja í framleiðslu SET og íslensku orkufyrirtækin eru stærstu viðskiptavinir þess.SET framleiðir fullkomið foreinangrað rörakerfi þar sem flutningsrör eru ýmist úr stáli og plasti.Einangrun úr Polyurethane frauði umlykur rörin, og yst er hlífðarkápa úr Polyethylene plastefni. Gæði stálröra, einangrunar og hlífðarröra eru ætíð tryggð með virku aðfanga- og framleiðslueftirliti.








