Set röraverksmiðja
Árið 1968 hóf Steypuiðjan, er síðar varð SET, framleiðslu á steinsteyptum fráveiturörum, og áratug síðar, einangruðum stálpípum fyrir hitaveitur. Í framhaldi af þessu hafa bæst við ýmsar fleiri gerðir plaströra og rörakerfa, en öll framleiðsla fer fram í verksmiðju SET á Selfossi.
Fjögurra áratuga starfsemi fyrirtækisins hefur öðru fremur einkennst af mjög virku samkeppnisumhverfi. Þær aðstæður hafa kallað á árvekni og skjót viðbrögð þar sem áhersla hefur verið lögð á hátt tæknistig, framleiðni og gæðavitund. Mikil þekking og reynsla hefur skapast á sviði framleiðslutækni hjá fyrirtækinu. Á það einnig við um kunnáttu á sviði markaðsmála og þjónustu við lagnaiðnaðinn.
Starfsmannafjöldi SET er um 70 manns. Fyrirtækið er í eigu Einars Elíassonar og fjölskyldu. Framkvæmdastjóri er Bergsteinn Einarsson.
Sagan segir
Forn menningarríki hófu gerð vatnsrenna og lagnastokka fyrir mörgum árþúsundum. Síðar voru þróaðar vatnsbrýr og málmpípur til að veita vatni til áveitu, þvotta og drykkjar.
Egyptar, Grikkir og Rómverjar áttu mikla verkmenningu á þessu sviði,en vatnsbrýr Rómverja eru enn í dag taldar meðal verkfræðiafreka mannkyns. Lagnagerð er því með elstu iðngreinum, og hefur að sjálfsögðu þróast með tímanum. Frá upphafi iðnbyltingarinnar, tilkomu véltækni og mjög aukinnar notkunar lagnaefna hefur þróunin orðið með sívaxandi hraða.
Efnin sem voru notuð í upphafi voru steinn, leir, timbur og málmar og hafa sum þessara efna verið í notkun fram á okkar daga. Bylting varð í þróun röra og lagnakerfa þegar hentug plastefni komu fram fyrir miðja síðustu öld, en plaströr náðu fyrst verulegri útbreiðslu á sjöunda áratugnum. Í dag koma stöðugt fram athyglisverð ný plastefni til röraframleiðslu, svo og margs konar nýjungar á sviði lagnatækninnar.
Fræðsla
Fræðslumál hafa mjög verið efld hjá Set á undanförnum árum, en SET rekur eigið fræðslukerfi fyrir starfsfólk; SET-Plastiðnaðarskólann, og annast auk þess námskeiðahald á sviði lagnatækni fyrir viðskiptavini sína. Íslenski lagnamarkaðurinn hefur á undanförnum árum einnig lagt aukna áherslu á gæðamál og fræðslu. Markmiðið hefur verið að auka endingartíma og draga úr viðhaldsþörf lagnakerfa sem sífellt verða stærri og margbrotnari.
Viðskiptavinir SET
Viðskiptavinir SET eru aðallega veitustofnanir, sveitarfélög, og endursölu- og þjónustuaðilar á byggingasviði. Meðal helstu viðskiptavina fyrirtækisins eru því stærstu orku- og fjarskiptafyrirtækin, byggingavöruverslanir og verktakar. Allir þessir aðilar hafa tileinkað sér innkaupareglur um opin útboð og verðsamanburð í samræmi við milliríkjasamninga, og SET því orðið að mæta alþjóðlegum samanburði í verði, vöru- og þjónustugæðum.
Gæðamál
Gæðamál Í framleiðslueftirliti og gæðamálum hefur stefna SET tryggt góðan árangur, en fyrirtækið hefur um árabil haft vottað gæðakerfi skv. alþjóðlegum stöðlum.
Gæðastefna Markmið SET er að stunda framleiðslu og þjónustustarfsemi á sviði lagnaiðnaðar og standast allar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar á hverjum tíma, jafnframt því að tryggja stöðuga nýsköpun, umbætur og þekkingarvöxt hjá fyrirtækinu og viðskiptavinum þess.
|
|
admin*
|